Vávává.. Ég kom í heiminn 5. mínutur yfir miðnætti þann 10.desember '04. Ég var ekkert rosalega stór né þungur, aðeins 12. merkur og 50 cm langur.. En mamma mín er ofboðslega ánægð með mig og langaði bara ekkert til að hafa mig stærri.. Ég fæddist með heilmikið hár á hausnum og ég heyrði mömmu og pabba að tala um að senda mig strax í jóla klippinguna.. Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu.. Það er nefnilega svo gaman að koma í heiminn og það er svo heilmikið að skoða.. Þegar pabbi hélt á mér rétt eftir að ég fæddist þá horfði ég bara út um gluggann og sá öll þessi hvítu stóru snjókort falla til jarðar.. Það var bara svo gaman að sjá þetta að ég fékk bara störu.. Síðustu mánuði hef ég nefnilega ekkert séð.. Þessvegna þoli ég ekki mikla birtu og fæ svoldið pirring í augun og þá sérstaklega þegar pabbi tekur myndir af mér.. æjó flassið er svo óþægilegt en mamma sagði mér að þetta ætti eftir að lagast.. Pabbi er rosalega stoltur af mér en hann heitir Þröstur Reyr Halldórsson og mamma mín heitir Steinunn Guðjónsdóttir



Aðalbjörn

Myndað af forliðnum "Aðal-" og viðliðnum -"björn" þar sem "Aðal" merkir aðall, - göfugur, - yfirstétt og "björn" merkir dýrsheitið björn, er merking nafnsins því göfugur björn.

Ægir
Ægir var nafn sjávarguðsins í norrænni goðafræði og er það nafn líklega komið af latneska orðinu "aqua" sem merkir vatn



Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.



Ég er annað barn foreldra minn sem heita Steinunn Guðjónsdóttir og Þröstur Reyr Halldórsson. Bróðir minn heitir Aðalbjörn Ægir Þrastarson. Við eigum líka tvo Goldenretriever hunda sem heita Sebastian og Gabriella.

Ég var svoldið lengi að komast í heiminn og var móðir mín með hríðir í sólarhring áður en hún átti mig. Stundum er sagt að annað barnið sé auðveldara í fæðingu en ég sannaði að svo var ekki í þetta skipti.

Ég var 3255 gröm og 51 cm þegar ég kom loksins í heiminn þann 24. júlí 2007 kl: 08-27. Mamma mín ætlaði sko að eiga mig fyrir 8. um morguninn svo að okkar frábæra ljósmóðir gæti verið með okkur en hennar vakt var bara til 8. Okkur til mikilla ánægju ákvað hún Bjarney H. Hilmarsdóttir ljósmóðir að vera lengur og taka vel á móti mér. Móðir minni til mikilla léttir.



Athena
fengið úr grískri goðafræði en Aþena var gyðja skynsemi og handiðnar, auk þess sem hún var stríðsgyðja.

Líf
líf



Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.



Pabbi er Maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.



Barnið er ágæt afsökun fyrir ykkur til að gera það sem
beinlínis þykir ekki hæfa fullorðnu fólki.
Nú getið þið legið á bakinu og sparkað fótunum upp í loftið.
Nú getið þið bakað drullukökur. Nú getið þið grett ykkur og geiflað. Nú getið þið dansað, og sungið.
Getu ykkar er engin takmörk sett.
Og þið heimtið ekki önnur laun en dillandi hlátur, gleðióp
eða augu sem galopnast af undrun